Færsluflokkur: Bloggar

Þá versnar enn skuldastaðan frá síðustu viku - nálgast hratt 400%

Það er vissulega gott að útflutningur eykst og innflutningur minnkar. En verra er að landsframleiðslan er að dragast hratt saman. Það þýðir m.a. að erlendar skuldir þjóðarinnar fara hratt hækkandi sem hlutfall af landsframleiðslu. Slæm var staðan fyrir, í síðustu viku var í umræðunni að erlendu skuldirnar væru um 350% af landsframleiðslu. Nú er ljóst að landsframleiðslan er að dragast mikið saman þannig að ef þetta yrði reiknað út m.v. nýjustu tölur þá er skuldastaðan líklega að nálgast 370% núna og verður komin í 400% eftir eitt eða tvö ársfjórðungsuppgjör í viðbót ef þróunin verður áfram í þessa átt.

Er enn til fólk sem heldur virkilega að það sé ekkert mál að borga Icesave?? Hvað segir Gylfi ráðherra núna??


mbl.is Mikill samdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki vitað hvar Osama Bin Laden er niðurgrafinn - orð að sönnu.

Þegar leitað er upplýsinga um Osama Bin Laden virðist hann vera algjörlega horfinn af yfirborði jarðar. Ekkert hefur sést til hans eða frá honum heyrst lengi svo staðfest sé. Ýmsir aðilar telja reyndar að hann sé löngu dauður, fyrir ca. 7-8 árum síðan. En engar upplýsingar eru fáanlegar um hvar hann er grafinn, eða niðurgrafinn eins og það er líka kallað. Al Qaida samtökin eru líka sögð fjárvana og máttlaus.

Og þá er nú spurning um af hverju enn er verið að leita að honum? Er verið að nota Bin Laden, dauðan eða lifandi, sem tylliástæðu til að halda úti stríðsbrölti í Afghanistan og Írak. Og til að vera með stæla við Íran og Pakistan? Allavega virðist engin ógn stafa af Osama Bin Laden í raun, þó vesturlönd séu enn dugleg að markaðssetja hann sem óværu sem þurfi að elta endalaust. Og fórna í því skyni mörgum mannslífum saklauss fólks og barna.


mbl.is Verja ákvörðun Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins kemur eitthvað upp á borð.

Það er nú gott á þessari tækniöld að hafa vefsvæði eins og Wikileaks og leyniþjónustur sem skoða tölvupósta og farsímanotkun. Fyrir vikið tekst að koma einhverjum mikilvægum upplýsingum upp á borðið, eins og sagt er. Ríkisstjórn Íslands vill hafa allt uppi á borðum eins og forystumenn hennar hafa marglýst yfir. Því miður hefur þeim ekki tekist að framfylgja þessari yfirlýstu stefnu hjálparlaust. En nú er það kannski að breytast með hjálp Wikileaks.

Annars vil ég bara hvetja fólk til að lesa þennan tölvupóst á Wikileaks þó þar komi ekki margt óvænt fram. Aðallega staðfesting á því sem ég og margir hafa haldið fram, að AGS stjórni hér. Þeir vilja bara að við borgum Icesave, hvernig sem við látum það líta út gagnvart þjóðinni. Ef við gerum það þá hleypa þeir einhverjum lánum í gegn, væntanlega til að við höfum eitthvað til að borga með.

Þannig að það má senda alþingismenn og ríkisstjórnina í langt frí. Hagfræði asnans sem elti gulrótina ræður hér för.


mbl.is Icesave-póstar á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrir góðir punktar, kannski fróðlegt að lesa bókina.

Mér fannst vera góðir punktar í þessu viðtali við Roger Boyes. Sérstaklega það að breskur leyniþjónustumaður hafi komið hingað til að leita að uppsprettum fjármagns. Vonandi að rannsóknarnefndir og saksóknarar hafi tekið eftir þessu. Það þarf að upplýsa sannleiksgildi þessara þvottapeningasagna í eitt skipti fyrir öll svo við vitum hvar við stöndum í því efni.

En líka fannst mér vanta betri yfirsýn yfir fjárstreymi almennt í hruninu og síðustu 2-3 árin á undan. Boyes fellur í þá gryfju eins og aðrir að segja að Íslendingar geti bara sjálfum sér um kennt og Davíð Oddssyni varðandi þetta hrun. Telur þó reyndar líka að um 150 manns beri langmesta ábyrgð á því hvernig fór eftir að Davíð opnaði kerfið. En það sem vantar hjá öllum þessum hrunskrifahöfundum er að greina fjármagnsferlana. Ég held því fram fullum fetum að um 98-99% af íslensku fjármálabólunni hafi eingöngu verið bankaforkólfum og útrásarvíkingum að kenna. En um 1-2% af þessari bólu má skrifa á almenna þáttöku Íslendinga í bólunni. Það fæ ég út þannig að offjárfesting í fasteignum og tengdri mannvirkjagerð hafi verið um 100-110 milljarðar, sem er staðfest verðmæti óseldra mannvirkja á lager núna, og annað bruðl í einkaneyslu almennings, bílar, utanferðir og annar lúxus hafi á þessari öld numið 100-200 milljörðum til viðbótar. Þetta gerir samtals að hámarki um 300 milljarða sem er aðeins um 2% af þeirri bólu sem sprakk í fyrra og var af stærðargráðunni 14-17.000 milljarðar.

Þess vegna hlýtur mismunurinn, eða 98-99% að hafa farið í eitthvað annað sem bankaforkólfar og útrásarvíkingar bera einir ábyrgð á. Og þetta þarf að greina betur. Það þarf að rekja fjármagnið og það er ekki hægt að viðurkenna að þetta sé bara okkar vandamál þegar allt bendir til að um 70-80% af starfsemi bankanna hafi verið erlendis og bólan falist í því að inn í erlend útibú eða dótturfélög voru færðir peningar, teknir að láni, innlán eða dirty money. Þessi peningar svo lánaðir eigendum bankanna eða tengdum aðilum eða erlendum viðskiptavinum til einhverra "fjárfestinga" erlendis. Þessir aurar hafa yfirleitt aldrei til Íslands komið, aðeins farið um banka með íslenskri kennitölu eða undir stjórn Íslendinga án þess að hafa nokkurn tíma verið nýttir á Íslandi. Þetta er grundvallaratriði í því hvernig á að vinna úr hruninu og hver á að bera ábyrgð á hverju. Og þó það sé sárt fyrir Breta o.fl. að hafa tapað innlánum sínum í stórum fúlgum þá verða þeir bara að líta sér nær. Ef peningarnir hafa aldrei farið úr breskri lögsögu þá er engin glóra í að kúga þá út úr Íslendingum. Þó einn Breti steli af öðrum með aðstoð íslenskra glæpafélaga eða -manna þá þýðir það ekki að sá sem stolið var frá geti komið og stolið sínu tapi af íslenskum almenningi. Það má aldrei gerast, jafnvel þó við höfum svo vitlausa ríkisstjórn að hún geti fallist á það.


mbl.is Boyes: Of mikil áhersla á ál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri stjórn búin að koma Bretlandi á hausinn. - Hvað gerist á verðbréfamörkuðum á morgun?

Þessi staða Bretlands er búin að vera vel ljós síðan í fyrra þó lítið hafi verið fjallað um það hér. Ég hef bloggað dálítið um þessa stöðu Bretlands og þá skoðun mína að þetta blankheitaklúður sem Brown hefur komið Bretum í skýri að miklu leyti hörku hans í sambandi við Icesave. Og nú hefur það verið staðfest að Bretland er á hausnum. Þar er allavega viðurkennd af stjórnvöldum versta staða landsins í áratugi. Það er athyglisvert að þarna voru það vinstrimenn einir og óstuddir sem komu landinu í þessa stöðu. Þarna hefur stjórnin ekki verið að hreinsa til eftir Tatcher og aðra hægrimenn. Verkamannaflokkurinn komst síðast til valda 1997 og hefur verið við völd í Bretlandi í um 12 ár samfellt. Sá flokkur hefur einn og óstuddur komið landinu í þá krísu sem það er í núna. Þeir sem mesta ábyrgð bera á breska klúðrinu og tómum ríkiskassa eru Tony Blair og Gordon Brown. Gordon Brown aflétti hömlum af fjármálafyrirtækjum, sleppti þeim lausum og leyfði þeim að vaða uppi með glórulausa starfsemi og himinháa bónusa fyrir allt tapið. Svo hefur hann verið að tæma ríkiskassann undanfarna mánuði til að bæta gráu ofan á svart. Hann hefur reynt að slá ryki í augu heimamanna með stælum út á við út af Icesave og gagnvart öðrum sem hann getur kúgað til að slá sjálfan sig til riddara. Nú kemst hins vegar almenningur í Bretlandi að hinu sanna um stjórn Verkamannaflokksins. Það er sennilega enginn þjóðarleiðtogi alvöru þjóðar eins vitlaus og Gordon Brown.

Nú er spurning hvort heimskreppan tekur nýja dýfu. Ég spái því allavega að þetta verði nú litið alvarlegri augum en smáskjálftinn í Dubai um daginn. Vonandi snarfalla hlutabréf í verði, það er eina leiðin til að ná tökum á þeirri ófreskju sem fjármálamarkaðir heimsins eru orðnir.


mbl.is Þung spor Alistairs Darling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðug markaðssetning - Einn plús fyrir ESB aðild.

Þetta virðist auðvitað svolítið fáránlegt en sniðugt um leið. Og gott hjá þeim að vera með öflug hagsmunasamtök, dönsku vændiskonunum. Vændi er greinilega nokkuð vel skipulögð atvinnugrein í Danmörku.

Svona verður þetta líka á Íslandi þegar Jóhanna og Álfheiður og Svandís og Katrín Jakobsdóttir og Katrín Júlíusdóttir og restin af ríkisstjórninni eru búin að koma okkur inn í ESB.

Þá geta vændiskonur frá Kaupmannhöfn og Hamborg og Amsterdam eða hvaðan sem er í ESB opnað hér útibú og verið með dúndurtilboð þegar þær vilja, rétt eins og þegar Bónus hefur verið að selja mjólkina á 1. krónu lítrann þegar samkeppnin er hvað mest. Og auðvitað geta íslenskar konur líka séð um þetta ef þær vilja og ef einhver vill þær.

Sameiginlegur vinnumarkaður, stjórnarskrá og regluverk ætti að tryggja svona starfsemi góða og löglega fótfestu á Íslandi í ESB. Þetta verður líka ánægjulegt innlegg í landkynningu á Íslandi sem ferðamannalandi og getur skapað þó nokkuð mörg störf. Kannski verður Skólavörðustígurinn með slatta af vændiskonum stillt út í glugga til sýnis í rauðum ljósum á kvöldin. Það er nú mjög jólalegt og gæti orðið til þess að fullt af mönnum fari í gönguferðir í miðbænum á kvöldin án þess að kaupa sér hund til að draga sig út í öllum veðrum. Þetta gæti líka dregið úr ofbeldi í miðbænum og verið kjörið tækifæri fyrir óstýriláta menn til að losa um spennu á náttúrulegan hátt.

Loksins finnur maður eitthvað sem gæti verið jákvætt við ESB aðild Íslands.


mbl.is Danskar vændiskonur bjóða ókeypis þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fársjúkt kerfi.

Það er ágætt að þessi umræða er komin fram. Ég hef svo sem nokkrum sinnum áður bloggað um Gordon Brown og skuldir Bretlands. Þessi orð Bernanke eru í sama dúr og ég hef haldið fram. Bretland er komið á hausinn undir stjórn Brown. Hann er nú búinn að vera lykilmaður lengi í ríkisstjórn, bæði sem fjármálaráðherra og nú forsætisráðherra. Og það hvernig hann er búinn að klúðra öllum málum skýrir sjálfsagt að verulegu leyti hvað hann er frekur varðandi Icesave og beitingu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi í fyrra.

En það er rétt hjá Bernanke að allt þetta los á eftirliti og umgjörð um fjármálastarfsemi í Bretlandi hefur haft mjög slæmar afleiðingar. Sama var gert í USA undir stjórn Greenspans í Seðalbankanum og þetta var líka gert hér. Þannig er þetta sjálfsagt ákveðið lykilatriði í því að koma kreppunni í þær hæðir sem hún hefur náð. Fjármálakerfið hefur verið algjörlega stjórnlaust, ekkert sem hefur stjórnað því eða hamið það nema hræðsla og græðgi.

Þó þetta aðhaldsleysi í fjármálakerfinu sé alþjóðlegt vandamál þá er eitt ríki sem sker sig nokkuð úr núna þegar taka þarf á afleiðingunum. Það er USA, þar eru menn teknir á beinið og settir í steininn á meðan mál eru rannsökuð. Svo falla bara dómar og málin gerð upp, sum meira að segja nokkuð hratt. En í Bretlandi og á Íslandi er ekkert gert, kannski búnar til skýrslur og sussað aðeins á liðið. En svo er öllu stungið undir stól og látið eins og ekkert hafi farið úrskeiðis. Spillingin virðist rista dýpra í þessum löndum en í USA. Hér er stjórnkerfið og fjármálakerfið enn svo sjúkt af spillingu að lækning finnst ekki, veikindin færast enn í aukana. Þessi veikindi geta þýtt endalok lýðveldisins.


mbl.is Bernanke gagnrýnir Gordon Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullt af stofnunum sem má leggja niður.

Varnarmálastofnun verður lögð niður. Sama má gera við eftirfarandi:

Úrskurðarnefndir um tryggingamál, útboðsmál o.fl. Nefndin hefur ekkert gildi. Öllum hennar úrskurðum má skjóta til dómstóla.
Fleiri slíkar úrskurðarnefndir eru jafn óþarfar.

Fasteignaskrá Íslands. Það er vafamál að þessi stofnun sé þörf. Bæði er að gögn sem frá henni koma eru ákaflega ónákvæm af ýmsum ástæðum og svo eru það byggingarfulltrúar landsins sem leggja stofnuninni til gögnin þannig að þessa stofnun mætti strangt til tekið skera niður í eina góða tölvu og gagnagrunn til að halda utan um upplýsingarnar.

Hagstofan. Það mærri athuga með öflugan niðurskurð þar. Það eru t.d. allt of margar vísitölur í gangi sem Hagstofan heldur utan um. Þessi vísitölufjöldi og starfsemi Hagstofunnar þar að lútandi vinnur beinlínis að ójöfnuði í þjóðfélaginu og óréttlátri tilfærslu fjármuna. T.d. má núna sjá verulega hækkun á lánskjaravísitölu á sama tíma og byggingarvísitala hefur lítið hreyfst. Önnur vísitalan er notuð til að meta verð mannvirkja og hin er notuð til að meta verðmæti lánanna sem tekin eru fyrir verði mannvirkjanna. Hvaða vit er í þessu. Af hverju er ekki nóg að nota sömu vísitöluna úr því þetta er á annað borð vísitölutengt.

Svona má lengi halda áfram.


mbl.is Fagna lokum Varnarmálstofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tók ekki nema viku að ná 12 milljörðum. - Hvað náðist hér í vikunni?

Þarna var brugðist skjótt við. Eftir upplýsingar sem fram komu í sjónvarpsþætti var gengið í að finna verðmæti sem var verið að skjóta undan úr þessu mikla gjaldþrotamáli. Með símahlerunum og fleiri aðgerðum tók aðeins viku að finna málverkasafnið og ná þarna 12 milljarða verðmæti upp í gjaldþrotið. Svona vel gengur þetta nú á Ítalíu. Hvað skyldi hafa tekist að ná miklum verðmætum upp í risagjaldþrotin hér í sömu viku??
mbl.is Reyndi að fela málverkasafnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilbreyting frá daglegri umræðu.

Það getur auðvitað verið viðkvæmt ef verið er að ýkja eða ljúga upp sögum af látnu fólki. Látnir eru þjóðfélagshópur sem á erfitt með að svara fyrir sig. Yfirleitt gerir þetta samt ekki til, það vita allir sem sögurnar heyra að það skiptir mestu máli hve alvarlega menn taka sögunum. Í þessu umrædda tilviki get ég ekki lagt mat á hvort verið er að gera úlfalda úr mýflugu eða ekki, en það er allavega nýnæmi í fréttum að deilur rísi út af draugasögum og kirkjugarðsferðum. Þannig að þetta er tilbreyting frá hefðbundinni umræðu.

Verra þykir mér þó en þetta, þar sem Jónas Freydal er að skemmta ferðafólki í kirkjugarðinum með alls kyns sögum um íbúana, að stjórnvöld hafa alveg sama verklag og Jónas. Þau fóðra landsmenn líka á hálfgerðum draugasögum, halda réttum upplýsingum út af fyrir sig og magna upp alls konar óvætti til að ógna landsmönnum með. Kannski Skattamóri og Jóhanna Heilaga Hvítavofa séu bara í raun og veru draugar. Það getur nú skýrt margt fyrir manni ef tilfellið er að draugar stjórni landinu. Og sömuleiðis ef þau eru alltaf að segja draugasögur, þó þau séu ekki draugar sjálf, þá skýrir það líka margt. Þá skilur maður alls konar vitleysu sem maður heyri frá þeim skötuhjúum. Þetta eru kannski bara draugasögur en ekki alvöru stjórnmál. Og kannski væri bara til bóta að fá Jónas Freydal í ríkisstjórnina, ég hugsa að hann sé bara að segja skemmtilegri draugasögur en Skattamóri og Hvítavofa.


mbl.is Falsaðar sögur af látnum ekki líðandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband