Færsluflokkur: Bloggar

Meiri líkur á að gosið færist yfir í jökulinn.

Miðað við nokkuð stöðuga skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli eru vaxandi líkur á að gosið ryðji sér leið upp úr jöklinum með tilheyrandi flóðahættu. Það hlýtur að vera ansi líklegt að stöðugur hristingur undir jöklinum leiði að lokum til þess að leið opnist fyrir gosið upp í jökulinn. Sú heppni sem það hefur verið að þetta gos hefur hingað til flætt í rás undir jöklinum að Fimmvörðuhálsi þar sem það hefur komið upp á yfirborðið er engin trygging fyrir því að svo verði áfram. Það þarf að hafa allan vara á vegna þessa goss. Ef það breytir um farveg og kemur upp í jöklinum geta orðið mikil flóð og mikil hætta sem fylgir þeim.

Það er ekki heppilegt hvað menn eru kærulausir varðandi það að þetta sé bara saklaust túristagos. Það er langt frá síðasta þekkta gosi á þessu svæði og litlar heimildir til að byggja á um hvað getur gerst áður en þessu gosi lýkur.


mbl.is Virknin í eldgosinu óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla traustvekjandi aðgerðir.

Það er greinilega búið að finna lausnina á skuldavandanum. Sama lausnin er notuð á Íslandi og í Grikklandi. Það eru tekin lán fyrir skuldunum, gefin út skuldabréf sem ekkert er á bakvið. Varla er þetta nú traustvekjandi lausn.

Ég var í Bretlandi í vikunni og hitti marga Breta sem spurðu í vorkunnartón út í ástandið á Íslandi. Það kom nokkuð á óvart hve Bretar virðast fylgjast vel með Íslandi. Almennt langar þá að heimsækja okkur, langar að koma til Íslands. Ísland hefur ennþá ímynd hins hreina og óspillta lands, að frátöldu fjármálakerfinu. Þeir spurðu flestir í forundran af hverju það væri ekkert tekið á þeim sem báru ábyrgð á bönkunum fram að hruni, af hverju þeir gengju lausir og sumir vissu líka að þessir menn hafa verið duglegir að koma sér fyrir í London. Ég svaraði sem rétt er að ríkisstjórnir Íslands og Bretlands virðist bara vilja pönkast á skattgreiðendum til að laga málin, en þeir sem ábyrgð bera eru víst friðhelgir.
Bretar telja raunar flestir, ef marka má þá sem ég ræddi við, að Bretland sé á sömu leið og Ísland í efnahagsmálum. Skuldirnar séu allt of miklar, bankamenn alltof friðhelgir og stjórnmálamenn alltof spilltir. Í Bretlandi er raunar lögð ofuráhersla á að láta sem allt sé í besta lagi af því að kosningar eru framundan í vor. Stjórnin vill víst ekki láta kosningaumræðuna snúast mikið um raunverulegt ástand og horfur. Það er alls staðar sami feluleikurinn og spillingin í pólitíkinni.


mbl.is Skuldavanda slegið á frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væðingar.

Það er búið að margvæða Ísland.

Hommavæðingin (Gay væðingin) eins og þingmaður kallar það er víst af hinu góða. Hún sagði að það væri gott að vera gay á Íslandi í dag. Þannig að við þurfum sem flest að taka þátt í þessari væðingu. Það er inn í dag að koma út úr skápnum, eða þannig. Þessi væðing er enn á útbreiðslustigi og nýtur sívaxandi vinsælda. Ég geri nú ráð fyrir að eins og aðrar öfgar muni þetta samt ganga yfir á nokkrum árum. Vona það allavega.

Græðgisvæðingin er önnur væðing sem var samtvinnuð einkavæðingunni. Þessar væðingar hafa náð hámarki sínu að sinni allavega. Það eru allir búnir að átta sig á að þessar væðingar fóru langt yfir strikið og hafa valdið þjóðinni ómældu fjárhagslegu tjóni, meiru en nokkru sinni hefur áður sést.

Alþjóðavæðingin er líka samtvinnuð einka- og græðgisvæðingunni. Það virðast reyndar fáir sjá samhengið eða heildarmyndina í þessum væðingum. Þess vegna eru sumar þessar væðingar enn taldar góðir kostir þó aðrar þeirra hafi algjörlega floppað. Það er t.d. hluti af alþjóðavæðingunni að Ísland gangi í ESB. Það þykir mörgum álitlegur kostur þó það sé í raun bara næsta skref í alþjóða græðgisvæðingu landsins.

Útrásarvíkingavæðingin, stóriðjuvæðingin og lánavæðing fjármálakerfisins voru líka hluti af þessum efnahagsvæðingum sem hafa algjörlega hrunið til grunna. En samt skal reyna alla afkima þessara væðinga og prófa líka ESB svo öll flóran sé prófuð.

Og þó allar þessar efnahagsvæðingar hafi brugðist þá eru stjórnvöld bísperrt að ljúga að sjálfum sér og þjóðinni að það borgi sig að halda áfram á sömu braut. Þau hugsa eins og dópistar (dópvæðingin) sem vilja prófa nýtt dóp og stærri skammta af öllu þangað til þeir steindrepa sig að lokum. Og þegar þeir átta sig á að það eina sem hefst af dópneyslunni er dauði er oft of seint að snúa til baka. Þannig virðast okkar stjórnvöld vinna. Þau neyða upp á þjóðina allskonar vonlausum væðingum með lygum og blekkingum.

En stjórnvöld hafa aðra skoðun á einni væðingu. Það er kynlífsvæðingin, hana er verið að banna hvar sem glittir í hana. Það þykir ekki góð væðing að fólk geri sér að skemmtun og atvinnuvegi eitthvað sem sumpart er þó hluti af lífinu. Það að körlum finnist gaman að horfa á konur og að konur geti haft tekjur af að láta karla horfa á sig er afar slæmt. Þannig að það er búið að banna það. Vonandi tökum við bráðum upp blæjuskyldu líka. Hún hefur lengi verið við lýði í mörgum löndum múslima og gefist vel. Ég hefði sjálfur ekkert á móti því að sjá þingkonur bera blæju fyrir andliti í þingsal.

Og svo er það jafnréttisvæðingin. Hún er í tísku og er nú komin á það stig að alþingi þykist hafa rétt til að segja sjálfstæðum hjálparsamtökum fyrir verkum um hverja þau megi styðja og hverja þau megi ekki styðja í starfi sínu. Þannig vill alþingi auðvitað ekki líða það að gamalt fólk á Íslandi fari að taka mat frá útlendingum sem hafa komið hingað. Þó alþingi og ríkisstjórn Íslands séu með allt niður um sig í sínum verkum og standi sig hvergi vel nema í að ljúga að landsmönnum, þá mega aðrir ekki forgangsraða til að bæta að einhverju marki fyrir ömurlegt gagnsleysi þessarar ríkisstjórnar sem gerir engum gagn. Svona er nú jafnréttisvæðingin. Það er gott að hafa svona þing og svona stjórn.

Svo að lokum má auðvitað ekki gleyma frelsisvæðingunni. Það er frelsi á öllum sviðum sem virðist helst koma fram í því að stjórnvöld hafa fullkomið frelsi til að stjórna öllu og banna og leyfa hægri vinstri eftir eigin geðþótta. Reyndar virkar þetta þannig í praxís að stjórnin og vinir hennar mega gera það sem þeir vilja, hinum er bannað að gera flest sem þeim dettur í hug.

Þegar þið hafið lesið þetta finnst ykkur þá ekki þessar væðingar stangast dáldið á við hvora aðra? Hvers konar bull þjóðfélag er þetta eiginlega sem er orðið til hér?


mbl.is Fordæma ákvörðun um mismunun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegt yfirlæti í Google eigendum.

Það er greinilegt að eigendur Google telja sig hafna yfir lög og reglu eins og oft verður þegar velgengni stígur mönnum til höfuðs. Þeir vilja ekkert fara að Kínverskum lögum, þeir vilja bara starfa þar á sínum forsendum og ætlast til að stjórnvöld í landinu lagi sig að því. Minnir þetta nokkuð á Ísland og útrásina?

Sennilega er þeir orðnir of stórir upp á sig til að lúffa, þannig að niðurstaðan verður sennilega sú að þeir verði reknir frá Kína. Það eru furðulegir viðskiptahættir að láta reka sig þaðan út af heimskulegri sérvisku. Og bendir til að Google stefni í sömu átt og Netscape, Altavista og fjölmargir aðrar sem risu hátt í netheimum. Að endalok Google séu að hefjast. Þegar svona stórt fyrirtæki getur ekki starfað eftir reglum fjölmennasta ríkis í heimi er það ekki góðs viti. Í Kína er tvímælalaust mest vaxandi markaður veraldar á flestum sviðum, líka fyrir Google. Það er því furðulegt að vilja ekki taka þátt í þeim markaði.


mbl.is Kína varar Google aftur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafn saklausir af þessu og öllu öðru.

Það er ekkert hróflað við þessum bankamönnum og útrásarliði. Og verður ekkert frekar þó tuga eða hundruða milljarða skattsvik bætist við allt hitt sem þeir hafa verið að gera af sér. Þetta eru hvort eð er allt ósannaðar dylgjur sem eru svo fáránlegar að það verður ekkert gert í þessu. Þannig hefur viðhorfið allavega verið hingað til þegar maður talar um að stinga þessu liði í gæsluvarðhald og frysta eignir á meðan málin eru rannsökuð.

Og það er örugglega enginn vilji til þess hjá Jóhönnu að fara að láta þetta lið borga skatta, hún var alveg tilbúin í að borga undir nýtt fyrirtæki hjá Björgólfi Thor fyrir nokkrum mánuðum síðan, og þar innifalið að veita honum góða skattaafslætti. Þetta tal hjá ríkisstjórninni er bara enn eitt moldviðrið til að afsaka að ekkert sé gert, enda eru þau strax farin að skammast yfir því að þetta sé eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi átt að gera fyrir 4-5 árum síðan. Þau ætla örugglega ekkert að gera annað en að röfla yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekkert gert. Og ef einhver raunverulegur vilji væri hjá þessari ríkisstjórn til að taka á þessu þá hefðu þau betur velt þessu fyrir sér áður en þau endurreistu bankana í fyrra horf með gömlu eigendurna og gömlu bankamennina innanborðs.

Alveg er þetta órúlega fyrirlitlegt lið sem aldrei getur framkvæmt eins og það talar.

Það er út af þessari endalausu spillingu og bulli sem við verðum nú vitni að á hverjum degi sem Íslendingar verða að krefjast beinnar aðkomu að ákvarðanatöku, beins lýðræðis, svo hægt sé að vinda ofan af spilltum stjórnmálamönnum og vinum þeirra í sínu prívat hagkerfi sem virðist alveg vera fyrir utan lög og reglu.


mbl.is Hundraða milljarða skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jackson gengur betur dauðum en lifandi.

Það er ekki nóg með að dánarbú Jackson hafi verið að gera metsamning með möguleika á ýmsum aukatekjum umfram og meðfram þessum samningi, sem samanlagt fara langt með að greiða upp allar skuldir hans.
Og það er ekki nóg með að hann hafi verið söluhæstur í Bandaríkjunum í fyrra.

Hann seldi þar að auki tvöfalt fleiri plötur í öðrum löndum en í heimalandinu.
Og hann á líka 50% á móti Sony í Elvis Presley, Bob Dylan og Bítlunum ásamt fleiri þekktum tónlistarmönnum. Sú eign er gríðarlegra fjármuna virði.
Og það eru engar áhyggjur af því lengur að hann sé að kássast á óeðlilegan hátt utan í börnum.

Það hefur því aldrei verið eins bjart framundan í tónlistinni og fjármálunum hjá Michael Jackson og núna. Verst fyrir hann að hann skuli ekki vera lifandi lengur til að njóta þess sjálfur. Eina hættan sem að honum getur steðjað nú er að gömlu góðu íslensku útrásarvíkingarnir geri veraldlegum umboðsmönnum hans einhver gylliboð sem gætu snúið við bjartri framtíð eins og hendi sé veifað.

Hér er meira um þetta:
http://finance.yahoo.com/news/Jackson-estate-in-record-deal-apf-3925585719.html?x=0


mbl.is Michael Jackson slær met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á sama tíma er þetta plottið í bönkunum.

Á sama tíma og fólk er að verða vitlaust á ástandinu og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hafa kvisast út fréttir sem skýra ágætlega þá stefnu sem er í gangi varðandi bankaskuldir heimilanna. Hér er afar athyglisvert blogg frá því 7. febrúar s.l. Það er Dagrún Steinunn Ólafsdóttir sem á þessa færslu. Ég hvet ykkur til að lesa þetta vel.Þegar maður les þetta þá er skiljanlegt að ekkert megi gera til að leiðrétta bankaskuldir vegna húsnæðislána. Nú skilur maður betur þessa bílalánadúsu sem Árni Páll ætlar að nota til að róa lýðinn á meðan bankar láta greipar sópa um heimilin.

http://dagsol.blog.is/blog/dagsol/entry/1015652/


mbl.is Margir eiga um sárt að binda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrelt vinnubrögð.

Vonandi verður eitthvað vit í þessari skýrslu þegar hún fer í dreyfingu.

En ég skil ekki af hverju hún er ekki komin nú þegar í hendurnar á okkur sem erum að bíða eftir henni úr því hún er tilbúin af hálfu rannsóknarnefndarinnar. Af hverju er verið að dunda við að prenta þessa skýrslu? Er verið að tefja málið vísvitandi? Af hverju var skýrslan ekki bara birt í síðustu viku á PDF formi á netinu? Hvaða fornaldar vinnubrögð eru þetta eiginlega? Af hverju er hún ekki bara handskrifuð á kálfskinn fyrst þetta þarf að vera svona gamaldags?

Það hefði verið nóg að prenta þessa skýrslu í 100 eintökum í rólegheitum á fjölritunarstofu með engri leynd og litlum kostnaði eftir birtingu PDF útgáfu af henni á netinu. Það er alveg forkastanlegt hvað menn geta komist upp með úrelt vinnubrögð á kostnað skattgreiðenda.

PDF útgáfa er þar að auki miklu þægilegri þegar um svona stóra skýrslu er að ræða. Miklu auðveldara að leita eftir stikkorðum og ná samhengi hlutanna með nútíma tækni en með því að þurfa að grufla í gegn um haug af pappír.

Ég ætla rétt að vona að skýrslan verði yfirhöfuð birt á PDF formi svo almenningur geti nálgast hana með lítilli fyrirhöfn án þess að fella þurfi fullt af trjám til þess.


mbl.is Hrunskýrslu beðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndarmennska.

Það er svo sem til bóta að banna dráttarvexti. En það er nú samt sýndarmennska líka. Því dráttarvextir eru bara lítið eitt hærri en samanlagðir samningsvextir og verðbætur í flestum tilvikum. Þeir endurspegla bara hátt vaxtastig. í raun jafngildir dráttarvaxtabann ca. 2-3% vaxtalækkun á lánum í vanskilum. Lánin munu eftir sem áður bera verðbætur og samningsbundna okurvexti. Þar liggur hinn raunverulegi vandi í kerfinu. Ef það á að gera alvöru umbætur á þessu vaxtaumhverfi þarf að afnema verðtrygginguna og setja þak á leyfða nafnvexti.
Og ef það er verið að hugsa um þetta sem sértækar aðgerðir til að rétta hag skuldara í því umhverfi sem hér ríkir í dag er þetta algjört lýðskrum. Í því efni er ekki hægt að bjóða minna en að lánin séu niðurreiknuð til samræmis við yfirtökuverð bankanna á þeim.


mbl.is Vilja banna dráttarvexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammastu þín Gylfi.

Viðskiptaráðherrann hann Gylfi hefur ekki haft miklar áhyggjur af efnahagsmálunum hingað til. Allavega hefur ekkert legið á að lækka vexti, afnema verðtryggingu, verja heimilin o.s.frv. Og hann hefur verið talsmaður þess að ríkið verði að taka á sig þær kröfur sem gerðar eru út af Icesave og ýmsu öðru, og talið það vel viðráðanlegt að borga allt slíkt.
Þeir sem hafa gagnrýnt stjórnina og áætlanir hennar eru vitleysingar í hans huga, samanber Alex hjá Recovery Partners í gær.
Og hann hefur ekki áhyggjur af því þó nýju bankarnir hafi fengið lánasöfn gömlu bankanna með 50-65% afslætti en innheimti þau að fullu með öllum verðbótum og okurvöxtum að auki. Það er allt í lagi að krefja almenning um allt að þrefaldar verðbætur og þrefalda okurvexti ofan á höfuðstól lánanna eins og bankarnir tóku við þeim.

En það er eitt sem getur ekki gengið lengur. Það er að bankamenn hafa ekki fengið neina bónusa í meira en heilt ár. Svoleiðis vanvirðing og árás á afkomu þessarar mikilvægustu stéttar í landinu, getur ekki gengið lengur. Guði sé lof að Gylfi ætlar að bæta úr þessu. Það var loksins að hann sá ljósið. Þetta er björgun Íslands. Að innleiða bónuskerfið aftur í bankana.

Nú skilur maður líka hvað hann var að fara þegar hann var að gagnrýna fullyrðingar Alex hjá Recovery Partners. Auðvitað fara ekki lánin frá AGS bara í jöklabréf. Gylfi ætlar að útdeila þeim í bónusgreiðslum til bankamanna. Það er ekki bara að það eigi að bjarga bankamönnum heldur á að fylla björgunarbát þeirra með seðlum svo engir aðrir komist í hann. Þetta er tær snilld.

Ég veit ekki hvað Gylfa ráðherra gengur til. Hann er greinilega rúinn allri skynsemi í efnahagsmálum. Það sem hann er að gera og lætur hafa eftir sér er svo vitlaust að það er ekki annað hægt en að skammast yfir því og skamma hann fyrir það og skammast sín fyrir hann. Þó verð ég um leið að viðurkenna að það er órökrétt að skamma einhvern fyrir skort á skynsemi. Annað hvort hafa menn hana eða ekki. En eftir stendur spurningin um hvernig við getum fundið hæfa menn í mikilvæg embætti. Þessi alltumlykjandi vanhæfni í stjórnkerfinu er hrikalegt vandamál.


mbl.is Bankarnir vilja bónuskerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband