Gangi þér vel Hera.
29.5.2010 | 19:48
Ég sendi góðar kveðjur til Heru og félaga og foreldra og vona að henni gangi vel í keppninni. Tel að lagið sé gott og verði örugglega vel flutt í keppninni. Þetta framlag Íslands að þessu sinni á vel að geta skorað mjög hátt í keppninni.
Það verður svekkjandi ef hún nær ekki upp í topp 5 í kvöld með þessu lagi hún Hera, þessi vel gerða kjarnakona sem er fulltrúi Íslands í Evrovision keppninni í kvöld.
Hera Björk á svið upp úr kl. 20 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jón, ég held að þessar kveðjur þínar skili 1 til 5 sæti í kvöld, og til hamingju með daginn
Guðmundur Júlíusson, 29.5.2010 kl. 20:38
Sæll Guðmundur og til hamingju með daginn sjálfur. Þú ert voða næs og jákvæður við mig núna! Takk fyrir það.
Jón Pétur Líndal, 29.5.2010 kl. 21:13
Næs? ég er alltaf næs, en hafi ég verið (Ó)næs áður bið ég þig velvirðingar, enda ýmislegt sagt í hita leiks :)
Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 29.5.2010 kl. 21:22
Sæll aftur Guðmundur. Allt í góðu, ég er sammála, það hitnar stundum aðeins á milli manna í umræðunni. Það er bara eðlilegt. Ekkert að biðja velvirðingar á gagnvart mér, ég er stundum duglegur við að blogga eitthvað sem ýtir við mönnum.
Jón Pétur Líndal, 29.5.2010 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.