Fáum William Black til að fást við spillinguna og glæpamennina.

Hér að neðan set ég tengingu á Facebook síðu fólks sem vill fá William Black til að hjóla í spillta pólitíkusa og glæpamenn sem hafa farið ránshendi um Ísland. Þessi maður er talinn hæfur til að reyta illgresið úr fjármálalífi og stjórnmálum Íslands. Sjáum hvað hann getur, fáum hann í verkið.

Það er greinilegt að Ísland er svo spillt að ekki er einu sinni hægt til málamynda að fara að tilmælum um lágmarksaðgerðir gegn spillingu.
Þetta skýrir kannski ágætlega af hverju ekkert er að gerast hér heimafyrir í að taka á þessu hruni og þeim sem bera ábyrgð á því og peningunum sem hurfu úr fjármálakerfi landsins.

Við náum aldrei neinum árangri í að uppræta þetta spillingar illgresi í okkar þjóðfélagi nema fá til þess utanaðkomandi illgresiseyði. Ég hvet fólk því til að leita allra ráða til að komast yfir svoleiðis illgresiseyði. Styðjið þá sem vilja nýta sér þekkingu og krafta William Black til að takast á við vandann.

http://www.facebook.com/group.php?gid=119325251419779&v=wall&ref=search


mbl.is Eftirfylgni Íslands óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Jónsson

Ætli þeir sem stjórna séu ekki hræddir um að verða dæmdir sjálfir ef William Black yrði ráðinn,spyllingin teygir anga sína eflaust ansi langt.

Friðrik Jónsson, 6.5.2010 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband