BESTUR í brottrekstri, tattúi, dónakalli og bleikum jakkafötum.
22.10.2010 | 13:23
Það er ekki tekið út með sældinni fyrir Jón Gnarr að vera borgarstjóri. Þetta er erfitt starf sem leggst þungt á hann.
Það sem hefur gengið best í þessu starfi hjá honum er að vera dónakall í Brussel, að fá tattúað merki Reykjavíkurborgar á sig og pensillín út af ígerðinni sem fylgdi tattúinu, að ganga í bleiku jakkafötunum sem hann fékk gefins um daginn og að reka 65 manns hjá Orkuveitunni í gær. Og svo auðvitað að greina frá því hvað þetta er allt erfitt og hvað það tekur á hann að vera borgarstjóri í Reykjavík.
Ég hugsa að eftir þessa erfiðu reynslu Jóns Gnarr vilji enginn maður verða borgarstjóri í Reykjavík, þannig að líklega situr hann uppi með embættið um ókomna tíð.
Jón Gnarr fékk ígerð í húðflúrið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Rétt hjá þér en lokasetningin er hroðaleg -
Ólafur Ingi Hrólfsson, 22.10.2010 kl. 13:31
Skjaldamerki Reykjavíkurborgar hafnaði honum.
Andrés Ingi (IP-tala skráð) 22.10.2010 kl. 14:22
Andrés - góður punktur - merkið hefur viljað heilbrigðari jarðveg.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 22.10.2010 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.