Höldum upp á afmælið með skrúðgöngu!!

Við skulum halda upp á afmæli ríkisstjórnarinnar um mánaðarmótin með skrúðgöngu. Það er vel við hæfi að við hyllum ástæla leiðtoga vora á viðeigandi hátt og þökkum þeim fyrir 2 frábær ár með þvi að fjölmenna í skrúðgöngu milli Alþingishússins og Stjórnarráðsins. Við skulum þramma þrjár ferðir fram og til baka og hrópa húrra allan tímann.

Ég legg til að þetta verði gert 1. feb. kl. 14.00 og byrjað við Alþingishúsið.

Látið mig vita um undirtektir. Ég skal leiða gönguna. Meðhjálparar að þessu framtaki vel þegnir.

Auglýsið þetta á Facebook og Twitter. Lágmarksmæting er 10 manns og aðgangur ókeypis!!


mbl.is Stjórn Jóhönnu að verða tveggja ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband