DV fjallar um Ólaf Ragnar og útrásartengsl hans.

Aldrei þessu vant ætla ég að auglýsa hér frétt af vef DV þó ég verði nú að viðurkenna að DV er ansi lélegt vörumerki. En í fréttinni er fullyrt að Ólafur Ragnar sé búinn að vera. Fréttin á að birtast í fullri lengd í næsta blaði.

Um þetta efni DV heyrði ég nokkrar vísur áðan sem ég ætla að birta hér í tilefni af þessu væntanlega greinarkorni DV.

Ólafur er búinn,
þreyttur og lúinn.
Lagði allt undir,
nú koma rannsóknarnefndarfundir.

Hangir eins og hundur á roði,
á Bessastöðum.
Ólafur villutrúargoði.
með útrásarvinum.

Auðmannaþjónusta er ekki grín,
smeðjuglottin dýr og fín.
Dorrit gamla glepur sýn,
felur þó ekki bréfin þín.

Bónus, Hagar, Gaumur, glens,
Bakkavör og fleira skrens.
Exista, Samson, Kaupthing, Glitnir,
ofjarla þína loksins hittir.

http://www.dv.is/frettir/2009/11/6/olafur-er-buinn/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband